速報APP / 財經 / Kort

Kort

價格:免費

更新日期:2018-11-30

檔案大小:23M

目前版本:1.0.3

版本需求:Android 4.4 以上版本

官方網站:http://www.landsbankinn.is

Email:landsbankinn@landsbankinn.is

聯絡地址:隱私權政策

Kort(圖1)-速報App

Með kortaappi Landsbankans getur þú nú geymt bæði debet- og kreditkortin þín í farsímanum og notað símann til að greiða háar og lágar upphæðir. Kortaappið virkar í öllum posum, bæði hér á landi og erlendis, sem bjóða snertilausa virkni.

Þegar þú hefur sótt kortaappið og skráð kortin þín þarftu aðeins að skrá þig inn í símann með fingrafari, andlitsskanna eða lykilorði og bera símann að posanum til þess að borga. Ekki þarf að fara inn í appið sjálft til að framkvæma greiðslu. Sama ábyrgð á við um slíka auðkenningu eins og ef um PIN-númer væri að ræða.

Þú heldur öllum fríðindum á borð við Aukakrónur og tryggingum sem fylgja kortinu þegar þú greiðir með farsímanum. Úttektarheimildir eru þær sömu og í raun öll virkni kortsins.

Greiðslukort Landsbankans eru alþjóðleg Visakort sem fylgja nýjustu öryggisstöðlum. Það sama gildir um Visakort sem skráð eru í kortaapp Landsbankans. Við notkun kortaappsins þarf að framfylgja öryggisreglum við innskráningu í farsímann til að tryggja öryggi greiðsluupplýsinga sem skráðar eru í appið. Ekki er hægt að framkvæma greiðslur nema að eftirtöldum skilyrðum uppfylltum:

Kort(圖2)-速報App

1. Síminn er með læsingu (fingrafar, andlitsskanni eða lykilorð)

2. Lykilorð er minnst 4 tölustafir

3. Kortaappinu er veittur aðgangur að öryggisstillingum farsímans

Appið virkar einungis fyrir viðskiptavini Landsbankans sem hafa debet- og/eða kreditkort frá bankanum.

Kort(圖3)-速報App

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Landsbankans: www.landsbankinn.is/kortaapp

Kort(圖4)-速報App