速報APP / 生產應用 / Kveikjarinn

Kveikjarinn

價格:免費

更新日期:2019-02-14

檔案大小:15.6 MB

目前版本:1.2

版本需求:需要 iOS 11.0 或以上版本。與 iPhone、iPad 及 iPod touch 相容。

支援語言:英語

Kveikjarinn(圖1)-速報App

Kveikjarinn er forrit til að þjálfa sköpun í formi skapandi skrifa. Kveikjarinn er með gagnagrunn með meira en 5200 atriðum sem nota má sem kveikjur til ritunnar. Kveikjarinn nýtist bæði í íslenskukennslu í skólum og fyrir hvern þann vill þjálfa ritunarhæfileika sína. Kveikjarinn er einnig gott verkfæri til að þjálfa tjáningu og sköpun. Sköpun hefur verið skilgreind sem einn af sex grunnþáttum menntunar.

Kveikjurrnar skiptast í eftirfarandi flokka:

• sögusvið og persónur

• textabrot

• málshættir

• fréttir

• lýsingar

Kveikjarinn(圖2)-速報App

• myndir

• listar

Þegar notandi ýtir á einn af flokkunum koma kveikjur af handahófi úr þeim flokk. Ef það voru lýsingar sem voru valdar gæti atriðið t.d. verið: áttavilltur draugur, forseti Íslands árið 2500, íþróttaleikur í augum geimveru eða eldhúsið hjá ömmu.

Notandi velur algjörlega hvernig hann notar kveikjurnar. Hægt er að nota aðeins eitt atriði sem kveikju eða blanda saman nokkrum atriðum. Í flokkunum sögusvið og persónur, textabrot og myndir er auðvelt að blanda saman nokkrum þeim atriðum sem birtast en auk þess er ekkert sem segir að ekki megi blanda saman atriðum úr mismunandi flokkum.

Markmið

Að notandi þjálfist í:

• skapandi skrifum

Kveikjarinn(圖3)-速報App

• að byggja upp texta

• að nota fjölbreyttar aðferðir til að lýsa aðstæðum, stöðum og persónum

• að nota jafnt ímyndunarafl og rökhyggju

• að þora að láta vaða

• að hugsa út fyrir boxið

Að þroska sköpunargáfu, tjáningarmáta og sjálfsvitund.

Höfundur Kveikjarans er Guðný Þorsteinsdóttir, B.Ed. í grunnskólakennarafræðum.

Kveikjarinn(圖4)-速報App

Gerð kveikjarans var styrkt af Menntamálaráðuneytinu.

Kveikjarinn(圖5)-速報App

支援平台:iPhone, iPad